top of page
Gjafa, honnunar og hannyrdaverslun.png

Öll velkomin í verslun okkar að Háholti 14 Mosfellsbæ.

Við tökum vel á móti þér.

Pistill vikunnar

Nýtt og glæsilegt útlit á gluggum MosóTorgs: Fagmennska, hönnun og bros á vör.
 

Við hjá MosóTorgi erum stöðugt að leita leiða til að fegra umhverfið okkar, bæta þjónustuna og gleðja okkar frábæru viðskiptavini. Að undanförnu höfum við staðið í ströngu við að gera upp gluggana okkar og nú erum við afar stolt af því að geta kynnt afraksturinn.
 

Til að tryggja að nýju gluggarnir nytu sín sem allra best ákváðum við að kalla til fagfólk. Við fengum til liðs við okkur reynslumikinn útstillingahönnuð sem fékk það hlutverk að hanna og setja upp glæsilegar útstillingar. Markmiðið var að skapa hlýlegt, áhugavert og stílhreint yfirbragð sem fangar augað og endurspeglar það sem MosóTorg stendur fyrir.

Útkoman er vægast sagt glæsileg og hefur gjörbreytt ásýndinni á rýminu okkar.
 

En við vildum ganga skrefinu lengra og setja okkar eigin, persónulega svip á uppfærsluna. Við hjá MosóTorgi tökum starfið okkar alvarlega, en við teljum líka mikilvægt að hafa húmorinn í fyrirrúmi. Þess vegna fengum við hæfileikaríkan hönnuð til að mála skemmtilegar skrípamyndir af okkur eigendunum.
Þessar myndir hafa nú fengið heiðurssess í nýju gluggunum. Þær munu vonandi kalla fram bros hjá vegfarendum og sýna að við erum alltaf til í smá grín.

Við erum himinlifandi með nýja útlitið og finnst það fanga andann hér í MosóTorgi fullkomlega, fagmennska blönduð við gleði og persónulega þjónustu.Við hvetjum alla Mosfellinga og nærsveitarmenn til að gera sér ferð, kíkja við hjá okkur, berja gluggana augum og sjá hvort þið þekkið okkur ekki örugglega á skrípamyndunum!

Hlökkum til að sjá ykkur,
MosóTorgs

4df58bad-59c7-463f-83d9-91f2de870c22.jpg
instalogo1 x 1 copy_edited.png
instalogo1 x 1 copy.avif

Hjá Instaprent færð þú skemmtilegar tækifærisgjafir.
-Segla, Púsl og bolla meðal annars

Persónuleg gjöf sem gleður

Búðu til þinn eigin sleikjó eða brjóstsykur fyrir afmælið eða hvaða viðburð sem er.

Einnig erum við með námskeið í brjóstsykursgerð.

​Margar bragðtegundir eru í boði sem kitla bragðlaukana.

Brjóstsykurinn þeirra er einfaldlega ómótstæðilegur.

Hjá MosóTorg getur þú fundið allt til brjóstsykursgerðar, hráefni, búnað og umbúðir sem þarf til að búa til yndislega heimagerða brjóstsykursmola. Í þægilegu umhverfi heima með fjölskyldunni eða með vinum.

Fullkomin skemmtun fyrir litla hópa, veislur og skemmtun með samstarfsfólkinu.

Allt fyrir brjóstsykursgerð

Matthíasdóttir (86 x 86 mm) (7).png

Foldabassa.is

Aðalega hannar Folda heimasíður og markaðsefni
 

Folda Bassa hannar líka boðskort, límmiða, sætaskipan, Velkomin skilti, borðanúmer, matseðla, Tri fold standa, gestabækur, kökutoppa, heillaóskir og heilræði miða og margt fleira.

Heimasíður.jpg

Hannyrði

Sigurbjörg.net er handverksverslun sem er staðsett bæði á netinu og í hjarta Mosfellsbæjar.

Þar finnur þú úrval af því besta sem tengist garni og öðrum handverksvörum.

bottom of page